Spurningar
Úr Hljómsveit
[breyta] Hvað er hljómsveit.is?
- Hljómsveit.is er, eins og nafnið bendir til, vefur um hljómsveitir á Íslandi
[breyta] Hver er tilgangurinn með hljómsveit.is?
- Að safna upplýsingum um hljómsveitir sem starfað hafa á Íslandi, ekki síst þær hljómsveitir í sveitum og þéttbýli sem hafa aldrei gefið út efni, en komið fram á ýmsum vettvangi, s.s. sveitaböllum, tónleikum og öðrum mannfögnuðum.
[breyta] Hvernig verður þessum upplýsingum safnað?
- Skráðir notendur geta sett inn efni. Þar sem hér er um að ræða frumgerð vefsins, eru einungis valdir notendur sem hafa með höndum innsetningu efnis. Í framtíðinni verður kerfið sett þannig upp að hver sem er getur skráð sig sem notanda og sett inn nýtt efni.
